Meiri yfirsýn.Meiri árangur.

Alfa er íslenskt stærðfræðiforrit fyrir grunn- og framhaldsskóla. Nemendur reikna á blað eins og venjulega og kennarinn sér stöðu hvers nemanda eftir hvern tíma og hvert verkefni, svo hægt sé að grípa inn í áður en nemandinn dregst aftur úr.

Prófaðu frítt

Frítt í tvo mánuði fyrir alla skóla. Engin skuldbinding.

Stærðfræði 9. bekkur · Tímadæmi

Ójöfnur, kafli 4

Tíminn er í gangi, staðan uppfærist sjálfkrafa

Byrjaðir

22/24

Hafa lokið

10/24

Nemendur

  • Hekla

    Svarað 6 af 6 dæmum · 6 rétt

    100%
  • Ari

    Svarað 4 af 6 dæmum · 4 rétt

    67%
  • Embla

    Svarað 6 af 6 dæmum · 4 rétt

    100%
  • Kári

    Svarað 4 af 6 dæmum · 0 rétt

    67%
  • Ísold

    Svarað 2 af 6 dæmum · 2 rétt

    33%
  • Jón

    Svarað 6 af 6 dæmum · 4 rétt

    100%
Með stuðningi og í samstarfi viðSamtök menntatæknifyrirtækjaHARTS

38% íslenskra 15 ára barna ná ekki grunnhæfni í stærðfræði.

Heimild: PISA 2025

Þennan vanda viljum við hjálpa kennurum að leysa. Til að ná tökum á flóknari hugtökum stærðfræðinnar þarf nemandi að kunna grunninn. Í dag berst hjálpin oft ekki fyrr en hann hefur dregist aftur úr. Með betri yfirsýn geta kennarar aðstoðað fleiri nemendur, og fyrr.

Prófið á ekki að koma á óvart

Það er auðvelt að setja fyrir verkefni en erfitt að vita hvernig hverjum nemanda gekk. Til þess þyrftu kennarar að safna saman tugum stílabóka eftir hvern tíma. Þess vegna kemur staðan oft ekki í ljós fyrr en eftir próf, þegar erfiðara er að bregðast við.

Í Alfa sér kennarinn í sundurliðuðu yfirliti þegar nemanda fer að ganga verr og þegar margir eiga erfitt með sama hugtakið. Þá er hægt að fara aftur yfir það í næsta tíma áður en haldið er áfram.

Hér er dæmi um nemanda sem á sífellt erfiðara með að ná tökum á ákveðnu hugtaki. Yfirlitið auðveldar kennaranum að aðstoða nemandann áður en hann er prófaður úr efninu.

Verkefnahefti · 7. bekkur

Almenn brot

  1. 1.23+16
  2. 2.34−58
  3. 3.213·3
  4. 4.Hvað er25af 35?
  5. 5.Einfaldaðu1824

Almenn brot

5 dæmi

Flytja inn úr skjali
23+16

Brot · Svar: 5/6

34−58

Brot · Svar: 1/8

213·3

Tala · Svar: 7

Hvað er25af 35?

Tala · Svar: 14

Einfaldaðu1824

Brot · Svar: 3/4

Kennarar halda stjórninni

Allt sem kennarar gera í dag geta þeir haldið áfram að gera í Alfa. Þeir velja efnið, setja það upp eins og þeim hentar og ákveða hvaða dæmi fara til nemenda. Öll dæmi geymast í skipulögðum söfnum, svo auðvelt er að halda utan um þau.

Gamla verkefnaheftið inn í Alfa á einni mínútu

Kennarar geta hlaðið upp gömlu verkefnahefti eða blaðsíðum úr bók og dæmin birtast í flokkuðu safni. Þannig eiga þeir sín bestu dæmi á einum stað og geta notað þau ár eftir ár. Ef skólinn er ekki með gervigreindina setjum við dæmin inn fyrir kennarann samdægurs.

Verkefni, tímadæmi og próf

Úr safninu býr kennarinn til verkefni, tímadæmi eða próf, velur hópana og birtir.

Stuðningur við öll

Nemendur innan hvers bekkjar eru sjaldnast á sama stað. Kennarinn getur sett hverjum hópi fyrir sitt eigið verkefni. Nemendur sjá aðeins sín verkefni, ekki hópaskiptinguna.

Sveigjanleg úthlutun verkefna

Þeir sem eru komnir lengra fá dæmi sem henta þeim betur. Þeir sem hafa dregist aftur úr fá meiri hjálp til að ná sér á strik. Hver hópur fær sína áherslu og enginn situr eftir.

Stærðfræði 7. bekkur

Verkefni

Almenn brot, kafli 3

Skil 28. okt.

Allt námskeiðið

Almenn brot - Blár hópur

Skil 28. okt.

Blár hópur · 6

Almenn brot - Gulur hópur

Skil 28. okt.

Gulur hópur · 5

Verkefnin hjá Ara

Almenn brot, kafli 3

Skil 28. okt.

Almenn brot - Blár hópur

Skil 28. okt.

Verkefnin hjá Heklu

Almenn brot, kafli 3

Skil 28. okt.

Almenn brot - Gulur hópur

Skil 28. okt.

Engin fyrirhöfn fyrir nemendur

Nemandinn opnar dæmið, ýtir á einn takka, tekur mynd af blaðinu og klippir til. Lausnin er komin til kennarans.

  1. Dæmi 5

    Leystu ójöfnuna 5x − 1 > 8x + 2 og sendu mynd af útreikningunum.

    Taka myndAf útreikningunum þínum til þess að senda inn svar

    1Opnar dæmið

  2. Myndavélin sýnir útreikninga nemandans á blaði
    Taka myndHætta við

    2Tekur mynd

  3. Myndavélin sýnir útreikninga nemandans á blaði

    Dragðu hornin til að hafa aðeins þetta dæmi á myndinni.

    Nota þessa myndTaka aftur

    3Klippir til

  4. x < −1
    Senda svar

    Niðurstaða

    Vel gert!

    4Lausnin er komin til kennarans

Enginn aukatími

Nemandinn reiknar á blað eins og áður. Að skila lausninni tekur enga stund.

Allt á einum stað

Öll verkefni og nauðsynlegar upplýsingar á einum stað. Nemandinn veit alltaf hvað er framundan.

Endurgjöf beint til nemandans

Niðurstaðan og athugasemd kennarans birtast nemendum fyrir hvert dæmi.

Svona lítur Alfa út

Kennarinn vinnur á kennaravefnum. Nemendur nota vafrann á Chromebook, iPad eða tölvu, eða Alfa Skóla appið.

kennari.alfakennsla.is
Kennaravefurinn: námskeiðin þín og hvað bíður í hverju.
Kennaravefurinn: námskeiðin þín og hvað bíður í hverju.

Verð

Eitt verð á nemanda, greitt 10 mánuði á ári. Kennarar geta prófað Alfa frítt með bekknum sínum áður en skólinn ákveður sig.

Alfa fyrir skóla

590 kr.á nemanda á mánuði

Greitt 10 mánuði á ári. Verð eru með vsk.

Innifalið

  • Staða hvers nemanda eftir hvert verkefni
  • Staða tímadæma í beinni á meðan tíminn er í gangi
  • Hópar og ólík verkefni fyrir ólíka nemendur
  • Dæmasafn sem fylgir kennaranum milli ára
  • Vinnslusamningur og gögn innan EES
  • Aðstoð við að komast af stað
Gervigreind+ 400 kr. á nemanda á mánuði

Valkvæð viðbót. Alfa les útreikningana á blaðinu og bendir kennaranum á hvar villan liggur. Kennarar flytja líka dæmi inn úr skjölum sjálfir.

Prófaðu frítt

Hannað fyrir skólaumhverfi frá grunni

GDPR og persónuvernd

Við gerum vinnslusamning við hvern skóla. Gögn nemenda eru geymd innan EES og ekki notuð í öðrum tilgangi nema skólinn samþykki það sérstaklega.

Nafnlausir nemendur

Nemendur skrá sig inn með kóða af spjaldi. Alfa geymir engin nöfn eða netföng nemenda, bara númer. Kennarinn getur slegið inn nöfn, en þau eru bara geymd í tölvu kennarans og fara aldrei til Alfa.

Örugg leið til þess að nota gervigreind

Gervigreindin er aðeins virk ef skólinn kveikir á henni. Vinna nemenda er eingöngu lesin innan EES, gögnin eru aldrei notuð til að þjálfa líkön annarra fyrirtækja og kennarinn hefur alltaf síðasta orðið.

Þróað í kringum íslenskt skólaumhverfi

Sérsniðið að íslensku námsefni, með þarfir kennara og nemenda að leiðarljósi.

Persónuverndarstefna fyrir skóla

Prófaðu Alfa frítt með bekknum þínum

Frítt prufutímabil fyrir alla skóla og engin skuldbinding. Við hjálpum þér að byrja og setjum dæmin þín inn ef þú vilt.

Byrja prufutímabil

eða sendu okkur póst beint á alfa@alfakennsla.is

Algengar spurningar

Breytir Alfa því hvernig kennarar kenna?

Nei, kennslan er áfram í höndum kennarans. Kennarinn velur efnið og nemendur reikna á blað eins og áður. Munurinn er að kennarinn sér hvar hver nemandi stendur eftir hvert verkefni og getur byggt næsta tíma á því.

Hvað kostar Alfa?

590 kr. á nemanda á mánuði, greitt 10 mánuði á ári. Gervigreindin er valkvæð viðbót og kostar 400 kr. á nemanda á mánuði. Auglýst verð eru með virðisaukaskatti.

Kostar eitthvað að prófa?

Nei. Prufutímabilið er frítt í tvo mánuði fyrir alla skóla, án skuldbindingar.

Þarf gervigreind til að nota Alfa?

Nei. Alfa virkar að fullu án gervigreindar. Lokasvör nemenda eru yfirfarin sjálfkrafa og kennarinn sér stöðuna eftir hvert verkefni. Með gervigreindinni les Alfa líka útreikningana á blaðinu og kennarar flytja dæmi inn úr skjölum sjálfir.

Hvernig skrá nemendur sig inn?

Hver nemandi fær spjald með nemandakóða frá kennaranum. Það þarf hvorki netfang né lykilorð.

Virkar Alfa á Chromebook og iPad?

Já. Alfa virkar í vafra á Chromebook, iPad og tölvum, og nemendur geta einnig notað Alfa Skóla appið á iPhone, iPad og Android-tækjum.

Alfa fyrir grunn- og framhaldsskóla | Alfa Kennsla