Nemendur læra af endurgjöf. Flestir fá hana of seint.
Alfa er íslenskt stærðfræðiforrit fyrir grunnskóla. Nemendur fá leiðsögn jafnóðum á meðan þeir æfa sig og kennarar fá heildarsýn yfir stöðu hvers nemanda.
Þróað í kringum íslenskt námsefni
Stutt af

Dæmið gengur ekki upp
Hér er einfalt dæmi sem sýnir magn af dæmum sem stærðfræðikennari gæti fylgt eftir í hverri viku.
1
kennari
25
nemendur
40
dæmi á nemanda
1.000
dæmi til yfirferðar á viku
Ómögulegt að fara yfir öll dæmi
Kennarar vilja aðstoða alla nemendur jafnóðum, en eins og er, þá er það ekki hægt.
Takmörkuð yfirsýn
Það er erfitt fyrir kennara að greina í tæka tíð hvað nemendur eiga í erfiðleikum með áður en þeir eru prófaðir úr efninu.
Með Alfa gengur dæmið upp
Alfa sér um fyrstu yfirferð
Nemendur fá endurgjöf um leið og þeir skila lausnunum sínum.
Yfirsýn yfir stöðu hvers nemanda
Kennarar geta fylgst með stöðu hvers nemanda jafnóðum og veitt aðstoð um leið og þörf er á.
Fyrir kennara
Minni handavinna, meiri yfirsýn
01
Búa til verkefni
Veldu dæmi úr viðurkenndum stærðfræðibókum og búðu til verkefni.
- Býr til verkefni á innan við mínútu
- Þróað í kringum núverandi kennsluefni


02
Fara yfir lausnir nemenda
Fylgstu með afrakstri nemenda og veittu þeim endurgjöf með hjálp gervigreindar.
- Sjálfvirk endurgjöf fyrir tímadæmi, verkefni og próf
- Allar lausnir nemenda á einum stað
03
Fáðu heildarsýn yfir stöðu bekkjarins
Fylgstu með þátttöku nemenda og finndu út hverjir þurfa auka aðstoð.
- Sundurliðað yfirlit yfir þátttöku nemenda
- Árangur nemenda geymist og veitir innsýn til lengri tíma

Fyrir nemendur
Skýrt og einfalt
01
Öll verkefni á einum stað
Tímadæmi, verkefni og próf birtast í appinu um leið og kennarinn setur fyrir. Nemandinn veit alltaf hvað er næst.


02
Endurgjöf á nokkrum sekúndum
Nemandinn skilar lausninni sinni. Alfa sýnir hvað er rétt og hvað má bæta.
03
Aðstoð þegar þörf er á
Þegar nemandinn á í erfiðleikum getur hann fengið aðstoð strax frá Alfa í stað þess að þurfa að bíða eftir aðstoð frá kennaranum.

Öryggi og persónuvernd
Hannað fyrir skólaumhverfi frá grunni
Gervigreind sem við stjórnum
Alfa rekur opin gervigreindarlíkön sjálft á GPU-innviðum innan ESB. Engin gögn nemenda berast til þriðju aðila gervigreindarþjónustna eins og OpenAI, Anthropic eða Google.
GDPR og persónuvernd
Við gerum vinnslusamning við hvern skóla sem tryggir að engir þriðju aðilar fái aðgang að gögnum nemenda.
Örugg leið til þess að nota gervigreind
Nemendur læra og fá að nota gervigreind sem námstæki, en ekki sem flýtileið.
Þróað í kringum íslenskt skólaumhverfi
Sérsniðið að Aðalnámskrá grunnskóla með þarfir kennara og nemenda að leiðarljósi.
Um Alfa
Tveir stofnendur með ólíkan bakgrunn og sameiginlegt markmið.
Alfa er hannað til að styðja við betri námsárangur í íslenskum skólum. Nemendur fá endurgjöf samstundis á meðan þeir leysa verkefni og kennarar fá betri yfirsýn varðandi hvar þörf er á stuðningi.
Sindri Freyr Jóhannsson
CEO · BSc í rekstrarverkfræði
Haraldur Jón Friðriksson
CTO · BSc í tölvunarfræði
Stuðningsaðilar
Þróað með stuðningi Tækniþróunarsjóðs Rannís
Alfa hlaut styrk úr Tækniþróunarsjóði Rannís til að þróa íslenska kennslulausn með aðstoð gervigreindar.
Sjá tilkynningu RannísEinfaldari kennsla. Meiri árangur.
Bókaðu stutta kynningu fyrir þinn skóla.
eða sendið okkur beint á alfa@alfakennsla.is
Ertu nemandi? Sæktu appið okkar